Vetrarleikar UÍF 6. - 14. apríl 2024

Árlegir Vetrarleikar UÍF verða haldnir 6.  til 14. apríl 2024.
 

Sunnudaginn 7. apríl:

  • Hestamannafélagið Glæsir verður með fjölskyldudag frá kl. 14:00-16:00, á hesthúsasvæðinu, Siglufirði. FRESTAÐ til 14. apríl vegna veðurs
  • Golfklúbbur Siglufjarðar (GKS) verður með holukeppni í golfherminum Siglufirði frá kl. 13:00-17:00. Golfhermirinn er staðsettur í húsinu hjá Sverri Björnssyni ehf í Vesturtanga 1-5, gengið er inn að norðan.  Allir velkomnir. 
  • Skíðafélag Ólafsfjarðar (SÓ) verður með leikjabraut og stuð frá kl. 13:00-15:00, í Tindaöxl og Bárubraut. Allir velkomnir og kennsla í boði. FRESTAÐ TIL MIÐVIKUDAGS 10. APRÍL KL. 17-18:30 
  • Skotfélag Ólafsfjarðar býður 15 ára og eldri að koma á innisvæðið í kjallara MTR og skjóta með 22cal rifflum á 25 metra færi. Skráning er á skotolo@gmail.com

Mánudaginn 8. apríl:

  • Tennis-og badmintonfélag Siglufjarðar (TBS) verður með opinn fjölskyldutíma í íþróttahúsinu Siglufirði, frá kl. 16:00 til 17:30.
  • Blakfélag Fjallabyggðar (BF) verður með opinn tíma fyrir 20 ára og eldri í íþróttahúsinu Siglufirði, frá kl. 17:30 til 19:00.

Miðvikudaginn 10. apríl:

  • Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) verður með opið spor á Hóli kl. 18:00-19:00, þjálfarar verða á staðnum. Tónlist og stemming.
  • Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) verða með opna leikskólaæfingu frá kl. 16:30 til 17:15, í íþróttahúsinu Siglufirði, og eru foreldrar einnig hvattir til að koma og taka þátt með börnunum.
  • Skíðafélag Ólafsfjarðar (SÓ) verður með leikjabraut og stuð  kl. 17:00 - 18:30 í Tindaöxl og Bárubraut. Allir velkomnir og kennsla í boði.

Fimmtudaginn 11. apríl:

  • Umf Glói - Sögusýning á Ljóðasetrinu frá kl. 16:00-18:00 í tilefni af 30 ára afmæli félagsins þann 17. apríl nk. Til sýnis verða m.a. myndir, fréttabréf, munir og búningar sem tengjast sögu félagsins.

Föstudaginn 12. apríl:

  • Umf Glói - Sögusýning á Ljóðasetrinu frá kl. 16:00-18:00 í tilefni af 30 ára afmæli félagsinsþann 17. apríl nk. Til sýnis verða m.a. myndir, fréttabréf, munir og búningar sem tengjast sögu félagsins.
  • Snerpa verður með kynningu á Boccia kl. 10:00 í Íþróttahúsinu á Siglufirði.

 Laugardaginn 13. apríl:

  • Hestamannafélagið Gnýfari verður með opið í reiðskemmunni Faxavöllum frá kl. 10:00 til 12:00, þar sem teymt verður undir börnum og eldri börnum boðið að fara á hestbak.

UÍF hvetur alla íbúa, foreldra og börn, til að mæta og prófa þær íþróttagreinar sem í boði eru. Boðið verður upp á léttar veitingar. 
Dagskráin er birt með fyrirvara því mögulega bætast fleiri viðburðir við.