Skráning hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna

Markaðsstofur landshlutanna, í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia, setja upp vinnufundinn MANNAMÓT MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 18. janúar 2024, kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi.

Mannamót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til Mannamót hafa þá sérstöðu að í sýningunni taka þátt fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, gömul og ný, frá öllum landshlutum. Uppsetningin og aðstaðan er hrá, óformleg og gefur góða mynd af sérkennum svæðanna sem hefur vakið ánægju bæði gesta og sýnenda. Markaðsstofurnar senda út þjónustukönnun eftir hverja sýningu þar sem aðilum gefst kostur á að koma skoðun sinni á framfæri og reynum við að aðlaga þjónustuna og skipulagið hverju sinni að þeim athugasemdum og tillögum sem koma fram.

Fjallabyggð hvetur öll fyrirtæki í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu til að taka þátt í Mannamótum og nýta tækifærið til kynningar og sölu á sínu fyrirtæki. Þetta er einstakt tækifæri til að efla tengsl við núverandi viðskiptavini, mynda ný tengsl og ekki síður til að kynnast samstarfsaðilum um allt land.

SKRÁNING

Fyrirtæki sem ekki eru aðilar að markaðsstofu geta haft samband við sína landshlutaskrifstofu og ef spurningar vakna varðandi þátttökuna hafðu þá samband á netfangið info@nordurland.is

Ferðaþjónustuvikan

Dagarnir 16. – 18. janúar 2024 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.

Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur en við hvetjum alla til að gera ráð fyrir skemmtilegri dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar í dagatalinu.

Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.