Jólatónleikar Karlakórs Fjallabyggðar og Kvennakórsins Sölku

Jólatónleikar Karlakórs Fjallabyggðar

Jólatónleikar Karlakórs Fjallabyggðar verða haldnir þann 2. desember 2023. Karlarnir fá til liðs við sig Kvennakórinn Sölku frá Dalvík og munu kórarnir syngja bæði saman og í sitthvoru lagi jólalög úr ýmsum áttum.

Tónleikarnir verða haldnir í Siglufjarðarkirkju og hefjast klukkan 20.

Aðgangseyrir er 2.500 kr. og 1000 kr fyrir 13 ára og yngri. Athugið að enginn posi verður á staðnum.

Meðleikari: Hörður Ingi Kristjánsson

Stjórnendur: Edda Björk Jónsdóttir og Mathias Spoerry.