Íþróttamaður ársins 2023 í Fjallabyggð - frestað til 4. janúar 2024

Íþróttamaður ársins 2023
 
Athöfn þar sem besta og efnilegasta íþróttafólk Fjallabyggðar verður verðlaunað fer fram í Tjarnarborg kl. 20.00 fimmtudaginn 4. janúar 2024.
 
Það eru Kiwanisklúbburinn Skjöldur og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa að valinu, í samstarfi við íþróttafélög innan UÍF, og athöfninni sjálfri. Er hún öllum opin og er fólk hvatt til að mæta og fagna uppskeru ársins hjá íþróttahreyfingunni í Fjallabyggð.