Íbúakjarninn Lindargötu Siglufirði - Starfsmaður óskast í afleysingar

Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og krefjandi vinnu á litlum vinnustað?

Starfsmann vantar í afleysingar í vaktavinnu, á Lindargötu 2 Siglufirði, frá og með 1. febrúar nk.

Skilyrði er að umsækjandi sé með hreint sakavottorð.

Æskilegt er að viðkomandi:

  • hafi bílpróf
  • sé stundvís
  • sé tilbúin að tileinka sér nýjungar
  • sé tilbúin að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Sótt er um rafrænt gegnum íbúagátt Fjallabyggðar - Almenn umsókn um starf hjá Fjallabyggð. 

Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Hafþórsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 866-1976.