Spurningar og svör um sorpflokkun

Hér má finna svör við nokkrum þeirra spurninga sem við höfum fengið varðandi flokkunina. Ef þú finnur ekki svarið hér þá hafðu samband við okkur og við munum svara spurningum þínum eða leita svara við þeim. Mundu þó að ef þú ert ekki viss er tryggast að setja ruslið í gráu tunnuna.

Hvar á að setja...

...bleyjur?
Fara í gráu tunnuna, þar sem bleyjur eru yfirleitt samsettar úr mörgum efnum.

...bómull?
Í gráu tunnuna.
Hreina bómull er í raun hægt að jarðgera, en mjög erfitt er að greina hreina bómull frá bómull blandaðri með gerfiefnum. Einnig er algengt að bómullin hafi komist í snertingu við efni sem ekki eiga að fara í jarðgerð eins og t.d. snyrtivörur eða lífræn leysiefni (aceton).

...geisladiska?
Fara í almennu tunnuna. Þeir eru úr plastblöndu, auk þess sem það er málmþynna í þeim.

...eldhúsbréf?
Í gráu tunnuna. Það er þó í lagi að eitt og eitt bréf fari í lífrænu tunnuna þar sem það er stoðefni í jarðgerðina, en það er ekki gott að fá mikið magn í einu. Gott viðmið er að hafi eldhúsbréfið verið notað til að þurrka upp matarleyfar þá má setja það með lífrænu en hafi þær verið notaðar til að þurrka upp eitthvað annað þá þurfa þær að fara í gráu tunnuna.

...eyrnapinna?
Þeir eru samsettir og fara því í gráu tunnuna.

...frauðbakka t.d. undan kjötvörum?
Ef frauðbakkinn er með plastmerki (sjá sorphirðuhandbók) þá þarf að skola bakkann og setja með plastinu. Ef hann er ekki merktur fer hann í gráu tunnuna.

...G-mjólkurfernur og svalfernur þ.e. með áli að innan?
Fara með öðrum fernum.

...gler?
Gler á að setja í gráu tunnuna. Gler má alls ekki fara í grænu tunnuna. Ástæðan er að innihaldið úr grænu tunnunum er handflokkað og gler skapar hættu á slysum fyrir þá sem það gera.

...gluggaumslög?
Í sorphirðuhandbókinni kemur fram að gluggaumslög megi ekki fara beint í grænu tunnuna. En þar sem ekki er um gæðaflokkun á pappír að ræða mega gluggaumslög fara beint í grænu tunnuna.
Til að gera þetta 100% rétt þá má rífa “gluggan” úr og setja með plastinu en umslagið sjálft með pappírnum.

...íspinnabréf með vaxáferð?
Í gráu tunnuna.

...íspinnaspýtur?
Í gráu tunnuna. En það er í lagi að ein og ein fari með í lífrænu tunnuna (ekki síst ef þær eru brotnar í nokkra parta)

...kaffipakka?
Eru yfirleitt samsettir úr plasti og áli. Allar samsettar umbúðir fara í gráu tunnuna. Ef kaffipakkinn er bara úr áli fer hann með málmhlutum í grænu tunnuna eins ef hann er bara úr plasti fer hann með plasti í grænu tunnuna. Auðvelt er að sjá hvort umbúðir eru samsettar með því að rífa þær í sundur.

...kertavax?
Í gráu tunnuna.

...kjúklingabein?
Bein moltast ekki og því fara öll bein í gráu tunnuna. Það er þó í lagi að það fari aðeins af litlum beinum í lífrænu tunnuna.
Það er í lagi þó að fólk setji bein í jarðgerðartunnuna en þau jarðgerast ekki og því þarf að sigta moltuna eftir jarðgerð ef bein fara með.

...latexhanska?
Fara í gráu tunnuna.

...litaðar servéttur?
Í gráu tunnuna. Það er ekki gott að segja hvaða efni eru í litunum.

...pappír úr pappírstætara?
Fer í glæran poka í grænu tunnuna.

...penna?
Flestar gerðir af pennum á að setja í gráu tunnuna.

...plastpoka?
Allir plastpokar mega fara með plasti þó þeir séu ómerktir. Harðir pokar t.d. innan úr kornflex pökkum mega þó ekki fara með þar sem óvíst er hvaða efni eru í þeim. Þunnu pokarnir sem notaðir eru fyrir ávexti í matvöruverslunum mega fara með plastinu eins gjaldfrjálsir pokar t.d. pokar úr bakaríum.

...plastpoka með álímdum miðum úr pappír?
Það er í lagi þó það séu einhverjir miðar á pokunum. Ef það er auðvelt að kippa þeim af þá er það æskilegt.

...plast sem ekki er með endurvinnslumerki?
Ómerkt plast verður að fara í gráu tunnuna þar sem ómögulegt er að segja til um úr hverju það er eða hvernig það skuli endurunnið. Þó mega plastpokar fara í grænu tunnuna með öðru plasti þótt þeir séu ekki merktir.
Allt hart plast verður að vera merkt til að mega fara með plastinu. Allt ómerkt hart plast fer í gráu tunnuna.

...smjörpappír/bökunarpappír?
Í gráu tunnuna. 

...snakkpoka?
Flestir snakkpokar eru úr plasti og fara í grænu tunnuna. Ef þeir eru samsettir úr áli og plasti þá fara þeir í gráu tunnuna.

...tyggjó?
Í gráu tunnuna 

Fer allt plast saman í glæran poka s.s. sjampóbrúsar og plastpokar?
Allt endurvinnanlegt plast (sjá svör um plast og plastpoka ofar) má fara í sama glæra pokann.

Má setja sléttan pappa s.s. kornflex pakka með fernunum poka?
Fernurnar fara í sér glæran poka og slétti pappinn í sér glæran poka.