| I.
Umsókn |
| |
1. |
Hægt er að sækja um
leikskóladvöl þegar barn er orðið 6 mánaða. |
| |
2. |
Umsókn er ekki háð því að
umsækjandi hafi lögheimili í Fjallabyggð. Leikskóladvöl má þó ekki úthluta
fyrr en lögheimili hefur verið flutt eða samið hefur verið við
lögheimilissveitarfélag umsækjanda um greiðslur kostnaðar. |
| |
3. |
Sótt skal um leikskóladvöl til
viðkomandi leikskóla á þar til gerðum eyðublöðum eða á vefsvæði viðkomandi
leikskóla. Eyðublöð skulu liggja frammi í leikskólum og á bæjarskrifstofum
Fjallabyggðar og vera gerð aðgengileg á vefsvæði sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| II.
Meðhöndlun umsóknar |
| |
4. |
Leikskólastjóri í viðkomandi
leikskóla úthlutar leikskóladvöl í samræmi við reglugerð þessa. Úthlutun fer
fram allan ársins hring eftir því sem pláss leyfir. |
| |
5. |
Umsókn skal
svarað skriflega eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi 14 dögum frá
móttöku. Í svari skal koma fram dagsetning úthlutunar ef hún er þekkt. Ef
ekki er laust leikskólapláss skal koma fram í svari hvenær ætla megi að
úthlutun geti átt sér stað. Í svari skal gerður fyrirvari um forgangsreglur
og þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað til að af úthlutun geti orðið. |
| |
6. |
Þegar barni
er úthlutað leikskóladvöl skal umsækjanda send tilkynning þar um.
Tilkynningunni skulu fylgja áætlun um aðlögun barns, almennar leiðbeininga um
leikskóladvöl, upplýsingar um viðkomandi leikskóla og eyðublað fyrir
upplýsingar um barnið og heimildir til myndatöku, ferða o.fl . |
| |
|
|
| III.
Reglur um úthlutun leikskóladvalar |
| |
7. |
Leikskólar Fjallabyggðar eru
ætlaðir börnum á aldursbilinu tveggja ára til sex ára. Heimilt er að veita
eins árs gömlum börnum leikskóladvöl ef það fellur að skipulagi skólastarfs
viðkomandi leikskóla. |
| |
8. |
Börn sem eiga lögheimili í
Fjallabyggð á úthlutunardegi hafa forgang fram yfir börn sem eiga lögheimili
í öðrum sveitarfélögum. |
| |
9. |
Ef ekki koma
til sérstakar ástæður til forgangs skv. 9. og 10. grein skal úthlutun
leikskóladvalar ráðast af árgangi barns og dagsetningu umsóknar. Þó skal
eldra barn í sama árgangi hafa forgang ef það er meira en 6 mánuðum eldra en
barn á biðlista. Hafi umsókn verið send inn áður en lögheimili var flutt í
sveitarfélagið skal miðað við móttöku umsóknar við úthlutun, enda hafi
lögheimili verið flutt í sveitarfélagið fyrir þann dag þegar úthlutun fer
fram. |
| |
10. |
Úthlutun
leikskóladvalar er háð því að hún falli að skipulagi leikskólastarfs og
forráðamaður sé skuldlaus við leikskóla Fjallabyggðar. |
| |
11. |
Eftirtaldir
hópar hafa forgang fram yfir önnur börn frá 18 mánaða aldri: |
| |
|
a. Fötluð börn og börn með skerta getu
samkvæmt vottorði frá viðurkenndum greiningaraðila. |
| |
|
b. Börn sem hafa sérstaka þörf fyrir
leikskóladvöl samkvæmt mati félagsþjónustu Fjallabyggðar. |
| |
|
Eftirtaldir hópar hafa forgang
fram yfir önnur börn í sama árgangi: |
| |
|
a. Börn sem búa í tvítyngdu málumhverfi. |
| |
|
b. Börn einstæðra foreldra. |
| |
|
c. Börn námsmanna í 75% námi eða meira sem
varir í minnst tvær annir. |
| |
12. |
Leikskólastjóri
getur sótt um forgang til handa barni starfsmanns eða væntanlegs starfsmanns
leikskóla til fræðslunefndar ef það er talið mikilvægt fyrir skólastarfið. |
| |
13. |
Ef
forráðamaður barns þiggur ekki boð um leikskóladvöl við úthlutun skal
móttökudagsetning höfnunar teljast ný móttökudagsetning umsóknar, nema
samkomulag náist um upphafsdag dvalar. Skal þá gjaldtaka fyrir leikskóladvöl
hefjast eigi síðar en hálfum mánuði frá úthlutun. |
| |
14. |
Óheimilt er
að úthluta leikskóladvöl til skemri tíma en eins mánaðar. Einnig er óheimilt
að úthluta leikskóladvöl vegna barns sem fyrir er skráð í annan leikskóla,
nema fyrir liggi gögn um uppsögn dvalar þar. |
| |
|
|
| IV.
Breytingar á dvalartíma og uppsögn |
| |
15. |
Óski
foreldri/forráðamaður eftir aukningu á dvalartíma fyrir barn sem er á
leikskólanum skal sækja um það á þar til gerðu eyðublaði. Umsókn um lengingu
á dvalartíma skal meðhöndluð á sama hátt og aðrar umsóknir. |
| |
16. |
Uppsögn
leikskóladvalar skal vera skrifleg og undirrituð af forráðamanni. Fækkun tíma
í leikskóladvöl telst uppsögn þeirra tíma sem um ræðir. Uppsagnarfrestur er
14 dagar og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar. |
| |
17. |
Sveitarfélaginu
er heimilt að segja upp leikskóladvöl vegna vangoldinna gjalda.
Uppsagnarfrestur af hálfu sveitarfélagsins skal vera 1 mánuður og miðast við
1. dag mánaðar. Uppsögn af hálfu sveitarfélagsins skal vera í samræmi við
stjórnsýslulög, nr. 37 30. apríl 1993. |
| |
|
|
| V.
Um opnunartíma, dvalartíma og skyldur forráðamanna. |
| |
18. |
Fræðslunefnd skal gera tillögur
að opnunartímum hvers leikskóla að höfðu samráði við leikskólastjóra.
Bæjarstórn Fjallabyggðar ákveður opnunartíma leikskóla að að fengnum tillögum
frá fræðslunefnd. Opnunartímar skulu auglýstir á áberandi stað við inngang
leikskóla og á heimasíðu leikskólanna og/eða sveitarfélagsins. Stytting
opnunartíma eða hámarksdvalartíma telst til uppsagnar þess tíma sem stytt er
um og skal því fylgja ákvæðum 14. greinar. |
| |
19. |
Hámarksdvalartími barns er 8,5
klukkustundir á dag. |
| |
20. |
Leikskóladvöl skal miðast við
jafnan tímafjölda alla virka daga vikunnar. |
| |
21. |
Ef sá tími sem úthlutað hefur
verið til barns er illa nýttur skal leikskólastjóri óska eftir því við
forráðamann að dvalartími barnsins sé endurskilgreindur þannig að hann taki
mið af raunverulegri dvalarþörf. Ef árangurslaust hefur verið leitað eftir endurskilgreiningu
er leikskólastjóra heimilt að segja upp þeim tímum sem að jafnaði eru ekki
nýttir, að því gefnu að þeir geti nýst öðrum börnum. |
| |
22. |
Komi
forráðamaður of seint að sækja barn sitt miðað við skilgreindan dvalartíma
skal hann greiða fyrir það samkvæmt gjaldskrá. Ef fyrirsjáanlegt er að tafir
verði á að barn verði sótt skal það tilkynnt starfsmönnum eins fljótt og
auðið er svo gera megi ráðstafanir varðandi mönnun. |
| |
|
|
| VI.
Reglur um gjaldtöku og innheimtu |
| |
23. |
Bæjarstjórn ákveður gjaldskrá leikskóla og
gerir breytingar á verðgrunni á grundvelli tillagna fræðslunefndar. |
| |
24. |
Eftirfarandi
afslættir eru veittir af leikskólagjöldum. Ekki er veittur afsláttur af
fæðisgjaldi: |
| |
|
a. Systkinaafsláttur
er veittur vegna barna á forræði forráðamanns/manna sem hér segir, að því
tilskildu að
þau eigi sameiginlegt
lögheimili: |
| |
|
30% afsláttur vegna 2. barns |
| |
|
50 % afsláttur vegna 3. barns |
| |
|
75 % afsláttur vegna 4. barns |
| |
|
100% afsláttur vegna 5. barns og
barna þar umfram. |
| |
|
Njóti börn á forræði forráðamanns
gjaldfrjálsrar þjónustu skulu þau ekki talin með við ákvörðun afslátta. |
| |
|
b. Einstæðir foreldrar fá 30% afslátt af
leikskólagjaldi fyrsta barns. |
| |
|
c. Námsmenn í 75% námi eða meira sem varir í minnst eitt ár fá 30% afslátt af
leikskólagjaldi fyrsta barns.
Námsmenn skulu staðfesta nám
sitt með vottorði frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn. |
| |
25. |
Leikskólagjöld
og fæðisgjald skulu felld niður ef börn eru fjarverandi í 1 mánuð eða lengur
vegna veikinda barns, að því tilskildu að veikindavottorð liggi fyrir. Að
sama skapi er heimilt, að höfðu samráði við félagsþjónustu Fjallabyggðar, að
fella niður leikskólagjöld ef félagslegar aðstæður valda langvinnum
fjarvistum. |
| |
26. |
Leikskólagjöld
greiðast fyrirfram og er gjalddagi þeirra 1. dagur hvers mánaðar. Um innheimtu gjaldsins gilda að öðru leiti
almennar reglur sveitarfélagsins um innheimtu. |