Síldarævintýri

Héðinsfjörður

Tími: 10-14 klst. (eða 2x6 klst)

Map for the hike

Til Héðinsfjarðar (1) liggja tvær leiðir fótgangandi manna frá Siglufirði: Hólsskarð (2) (620 m) austur af Hólsdalsbotni og Hestskarð (3) austur af Skútudal. Þótt Hestskarð (590 m) sé bratt og allerfitt yfirferðar þá er það stysta leiðin til Héðinsfjarðar og sú sem flestir fara enn þann dag í dag. Gera má ráð fyrir 3-5 klst. gangi þessa leið.

Héðinsfjörður er nokkuð styttri en Siglufjörður (að innsta fjörukambi). Stórt samnefnt stöðuvatn um 2,5 km á lengd er skammt ofan við sjávarkamb.

photo: sr. Bragi Ingibergsson Í byrjun 20. aldar bjuggu í Héðinsfirði um 50 manns á 5 bæjum. Vík (4) nyrst, þá Vatnsendi, Grundarkot, Möðruvellir og Ámá. Mjög snjóþungt er þar flesta vetur og ógnuðu snjóflóð löngum búsetu manna á þessum slóðum. Vaxandi atvinnulíf og öruggari afkomumöguleikar á Siglufirði og öðrum þéttbýlisstöðum leiddu til þess að Héðinsfjörður lagðist í eyði, síðustu Héðinsfirðingarnir fluttu í burtu árið 1951. Í Vík er nú björgunarsveitarskýli (4).

Silungsveiði og gott berjaland dregur fólk þangað hvert sumar og víst er að Héðinsfjörður er mjög fagur á góðum degi og hin einstæða ásýnd eyðifjarðarins lætur engan ósnortinn. Um nöfn fjalla og hæð þeirra skal vísað til landakorts.

Mesta flugslys á Íslandi varð við Héðinsfjörð 1947. Þá flaug Dakota flugvél Flugfélags Íslands í þokuveðri á Hestfjall (5) (586 m) yst við fjörðinn vestanverðan og 25 menn fórust.

photo: sr. Bragi Ingibergsson Margar leiðir er að velja þegar haldið er frá Héðinsfirði. Leiðirnar Til Siglufjarðar voru nefndar fyrr. Um þrjár fjallaleiðir er að ræða ef ganga á til Ólafsfjarðar, allar um og yfir 600 m háar: Um Víkurdal, um Rauðuskörð (570 m) og niður Árdal. Um Möðruvallaskál (690 m), svokallaðar Fossabrekkur niður í Syðriárdal. Og að síðustu yfir Möðruvallaháls (650 m) fremst í Héðinsfirði og niður í Skeggjabrekkudal. Af þessari leið er hægt að fara um Sandskarð niður í Fljót.

photo: sr. Bragi IngibergssonAð síðustu skal nefnd sú leið sem flestir ættu að fara sé þess nokkur kostur en það er sjóleiðin. Hún er afar skemmtileg í góðu veðri sérstaklega ef siglt er nálægt Hestinum (5) eða Hvanndalabjargi (6).

 

Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_v_mg_8461.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning