Margar góðar gönguleiðir eru í Fjallabyggð og flestir ættu að geta fundið leiðir við hæfi. Sumar leiðanna eru troðningar eins og forfeður okkar gengu í 1000 ár, en einnig eru nýrri leiðir sem eru þægilegar göngu og forvitnilegar.
Átak hefur verið gert í merkingum gönguleiða á Tröllaskaga. Einnig má benda á gönguleiðakort sem Hólaskóli hefur útbúið og selt er víða á svæðinu.
Nánari upplýsingar og heimildir eru að finna í eftirtöldum ritum:
Siglfirskar þjóðsögur og sagnir, Þ. Ragnar Jónasson.
Siglfirskir söguþættir, Þ. Ragnar Jónasson.
Siglufjarðarfjöll (Árbók Ferðafél. Ísl. 1990) Þ. Ragnar Jónasson
Í stranbyggðum norðan lands og vestan (Árbók Ferðafél. Ísl. 2000) Valgarður Egilsson
Ólafsfjarðarfjöll, Gönguleiðir um Ólafsfjörð og nágrenni, Ferðafélag Íslands og Ferðamálaráð Ólafsfjarðar, 1996.
Ferðafélagið Trölli









