Starfsreglur húsnæðisnefndar Fjallabyggðar um úthlutun félagslegra leiguíbúða.
Tilgangur og lagagrundvöllurFélagslegar leiguíbúðir sveitarfélagsins Fjallabyggðar eru ætlaðar einstaklingum sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og búa við erfiðar aðstæður, geta ekki eignast eigið húsnæði og þurfa því aðstoð til að geta búið við öryggi í húsnæðismálum.
Reglur um úthlutun félagslegra leiguíbúða Fjallabyggðar byggja á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, Húsaleigulögum nr. 36/1994, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og reglugerð nr. 873/2001 um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur.
Úthlutun félagslegra leiguíbúða
Réttur til úthlutunar félagslegrar leiguíbúðar
er bundinn skilyrðum um tekju - og eignamörk eins og þau eru hverju sinni
samkvæmt ákvörðun félagsmálaráðuneytis sbr. 23. og 24. gr. reglugerðar um
lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001.
Tekjumörk eru eftirfarandi m.v. janúar 2007;
|
Einstaklingar: |
|
|
|
|
|
|
0 Börn |
1 Barn |
2 Börn |
3 Börn |
4 Börn |
5 Börn |
|
2.686.000 |
3.136.000 |
3.586.000 |
4.036.000 |
4.486.000 |
4.936.000 |
|
Hjón/sambýlisfólk: |
|
|
|
|
|
|
0 Börn |
1 Barn |
2 Börn |
3 Börn |
4 Börn |
5 Börn |
|
3.760.000 |
4.210.000 |
4.660.000 |
5.110.000 |
5.560.000 |
6.010.000 |
Miðað skal við samanlagðar tekjur væntanlegra heimilismanna 18 ára og eldri. Tekjur skulu metnar á grundvelli afrits af skattframtali sl. árs, staðfestu af skattstjóra og launaseðla síðustu 3 mánaða.
Eignamörk fyrir árið 2007 eru kr. 2.899.000.
Húsnæðisnefnd er heimilt að veita undanþágu frá ákvæði um tekju - og eignamörk á grundvelli mats félagsþjónustu Fjallabyggðar á högum umsækjanda, s.s. vegna skyndilegra breytinga á högum umsækjanda, mikilla skuldsetninga, atvinnuleysis, veikinda, núverandi húsnæðisaðstæðna eða annarra félagslegra aðstæðna. Jafnframt er nefndinni heimilt að veita undanþágur frá umræddu ákvæði ef engin umsækjandi uppfyllir skilyrðin.
Forgangsröðun umsókna
Húsnæðisnefnd hefur eftirfarandi
atriði til grundvallar við mat á húsnæðisþörf þegar fleiri en ein umsókn
uppfyllir ofangreind skilyrði um tekju - og eignamörk:
- Núverandi húsnæðisaðstæður og öryggi í húsnæðismálum
- Gerð núverandi húsnæðis og ástand þess
- Fjölskyldustærð og fjöldi barna
- Heilsufar og vinnugeta.
- Núverandi tekjur
- Samræmi milli fjölskyldustærðar og stærðar þeirrar íbúðar sem úthlutað er.
Uppfylli engin umsækjandi skilyrði um tekju og eignamörk skal horft til aldurs umsóknar, stærðar fjölskyldu umsækjanda og stærðar þeirrar íbúðar sem sótt er um við mat á húsnæðisþörf.
Auglýsing íbúðar og umsóknarfrestur
Lausar íbúðir skal auglýsa strax
og uppsögn liggur fyrir. Lágmarksfrestur til að sækja um skal vera 1 vika.
Berist engin umsókn framlengist umsóknarfrestur sjálfkrafa um viku í senn.
Auglýsa skal íbúðina aftur innan þriggja mánaða.
Afgreiðsla umsóknar og úthlutun
Húsnæðisnefnd afgreiðir umsókn um
leið og umsóknarfrestur rennur út samkvæmt ofangreindum reglum um forgang.
Starfsmaður húsnæðisnefndar annast úthlutun leiguíbúða í samráði við
húsnæðisnefnd. Þó er starfsmanni heimilt að úthluta íbúð í samráði við formann
nefndarinnar ef aðeins er einn umsækjandi um íbúðina. Húsnæðisnefnd skal
upplýst um slíka úthlutun á næsta fundi hennar.
Þegar íbúð hefur verið úthlutað skal öllum umsækjendum svarað skriflega. Í svari skal koma fram á hvaða grundvelli úthlutun átti sér stað.
Höfnun umsóknar
Heimilt er húsnæðisnefnd að hafna umsókn ef
umsækjandi hefur áður verið leigjandi í húsnæði sveitarfélagsins og er í
vanskilum með húsaleigu eða hefur orðið uppvís að brotum á umgengnisreglum sem
varðað geta riftun samnings. Við mat á skuldastöðu skal horft til vangoldinnar
húsaleigu, vangoldins kostnaðar vegna vanrækslu á skyldum, kostnaðar við útburð
og kostnaðar vegna skemmda af völdum leigjanda á áður leigðu húsnæði.
Telji umsækjandi á rétt sinn hallað við úthlutun leiguíbúða, getur hann skotið viðkomandi ákvörðun til kærunefndar húsnæðismála.
Leigutími
Húsaleigusamningar eru gerðir til
reynslu til þriggja mánaða. Að þeim tíma loknum er gerður ótímabundinn
leigusamningur, enda hafi leigjandi á leigutímanum sinnt skyldum sínum sem
leigjandi og ekki orðið uppvís að brotum á leigusamningi eða húsaleigulögum sem
varðað geta riftun samnings. Þó er í sérstökum tilfellum heimilt að gera
tímabundinn samning við leigjanda samkvæmt ákvörðun húsnæðisnefndar.
Húsaleiga
Húsaleiga er ákvörðuð skv. 28.
grein reglugerðar nr. 873/2001 um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra
og rekstur. Hún er bundin vísitölu neysluverðs og uppfærð ársfjórðungslega. Húsnæðisnefnd
sér um ákvörðun húsaleigu í umboði bæjarstjórnar. Breytingar á húsaleigu taka
gildi 1. dag næsta mánaðar eftir staðfestingu bæjarstjórnar.
Húsaleiga greiðist fyrirfram með gjalddaga 1. hvers mánaðar.
Vanskil á húsaleigu
Vanskil á húsaleigu varða riftun leigusamnings
skv. 61. grein húsaleigulaga, nema samið sé um greiðslu skuldarinnar.
Tryggingarfé
Við upphaf leigu þarf að leggja
fram tryggingafé sem svarar til 2 mánaða leigu. Andvirðið er lagt inn á
reikning í eigu Fjallabyggðar. Fjárupphæðin er trygging húsnæðisnefndar fyrir
greiðslu ef leigjandi eða aðilar á hans vegum valda skemmdum á húsnæðinu, vegna
vanskila á húsaleigu, hitakostnaði eða orkureikningum eða ef viðskilnaður er
með þeim hætti að gera þarf húsnæðið hreint. Ef húsnæðinu er skilað
athugasemdalaust fær leigutaki til greiðslu höfuðstól og áfallna vexti.
Hússjóður og sameiginlegur
kostnaður
Auk húsaleigu greiðir leigjandi í
hússjóð og hluta af sameiginlegum kostnaði af húshitun og rafmagni. Nánar skal
kveðið á um kostnaðarhlutdeild leigjanda í leigusamningi.
Afnot íbúðar
Íbúðir sveitarfélagsins eru ætlaðar
leigutaka og fjölskyldu hans til íbúðar. Önnur afnot húsnæðis eru óheimil.
Framleiga húsnæðis er með öllu óheimil.
Uppsagnarákvæði
Uppsögn skal vera skrifleg.
Uppsagnarfrestur af hálfu leigjanda eru tveir mánuðir og miðast við fyrstu dag
næsta mánaðar eftir móttöku uppsagnarbréfs. Um uppsagnarfrest leigusala fer
eftir 56. grein húsaleigulaga nr. 36/1994.
Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila. Leigjandi skal þó eiga forgang á áframhaldandi leigu ef íbúðin er föl til áframhaldandi leigu skv. ákvæðum 51. greinar húsaleigulaga, enda hafi hann á leigutímanum sinnt skyldum sínum sem leigjandi og ekki orðið uppvís að brotum á leigusamningi eða húsaleigulögum sem varðað geta riftun samnings.
Milliflutningur
Óski leigutaki eftir flutningi úr núverandi
leiguhúsnæði í aðra félagslega leiguíbúð á vegum húsnæðisnefndar er mál hans
tekið fyrir eins og um nýja umsókn væri að ræða. Sé leigutaki í vanskilum vegna
hins leigða húsnæðis kemur umsókn um milliflutning því aðeins til greina að um
uppgjör skuldarinnar semjist.
Afhending íbúðar
Við afhendingu leiguíbúðar greiðist leiga og
hússjóður fyrsta leigumánaðar, auk tryggingarfjár. Skilyrði er að umsækjandi sé
ekki í vanskilum við Fjallabyggð, stofnanir hans eða fyrirtæki við afhendingu
leiguíbúðar.
Ástand íbúðar
Leigjanda skal afhent íbúð í leiguhæfu ástandi.
Úttekt skal gerð á ástandi húsnæðis við upphaf og lok leigutímabils. Leigutaki
getur innan 14 daga frá innflutningi gert athugasemdir við ástand íbúðar og
úttekt þá sem gerð var við útflutning síðasta leigjanda. Skal þá umsjónarmaður
leiguíbúða meta hvort bætt skuli úr þeim galla sem gerð er athugasemd við. Sé
það ekki gert er athugasemdin skráð til að tryggja að leigutaki verði ekki
krafinn um bætur við útflutning. Ef leigutaki er ósáttur niðurstöðu úttektar
eða ákvörðun umsjónarmanns um úrbætur má skjóta málinu til húsnæðisnefndar.
Í leigusamningi skal kveðið nánar á um ástand hins leigða, viðhald, umgengni og skyldur leigutaka ef þörf krefur.
Sameign og lóðir
Leigjendur í fjölbýlishúsum sjá sameiginlega
um þrif á sameign og umsjón með
sameiginlegum ruslageymslum ef um slíkt er að ræða. Leigjendur raðhúsaíbúða með
sérlóð skulu sjá um umhirðu þeirra. Vanræki leigjandi þessar skyldur sínar skal
sveitarfélagið láta sinna þeim á kostnað leigjanda. Sé um ítrekaða vanrækslu að
ræða og/eða neiti leigjandi að greiða kostnað sem til fellur vegna hennar
varðar það riftun leigusamnings skv. 61. grein XII. kafla Húsaleigulaga nr.
36/1994.
Ef þrif á sameign og umsjón með ruslageymslum er viðvarandi vandamál í húseign getur húsnæðisnefnd Fjallabyggðar ákveðið nýtt fyrirkomulag fyrir þessi verkefni á kostnað leigjenda. Skal þá leigjendum sem málið varðar send skrifleg tilkynning og gefinn kostur á andmælum.
Gæludýrahald
Hunda- og kattahald er ekki
leyfilegt í leiguhúsnæði á vegum Fjallabyggðar.
Riftun húsaleigusamnings
Hafi leigutaki brotið gegn
ákvæðum leigusamnings eða ákvæðum húsaleigulaga skal húsnæðisnefnd beita
riftunarákvæðum 61. greinar húsaleigulaga nr. 36/1994 til að gæta hagsmuna
annarra leigjenda og sveitarfélagsins.









