Síldarævintýri

Dalaskarð - Úlfsdalir

Map for the hike

Tími: 3 - 6 klst. 

Um Dalaskarð (1) (520 m) til Úlfsdala (2). Um Úlfsdali liggur þjóðvegurinn til Siglufjarðar. Þar nam Úlfur víkingur land og bjó á Dalabæ. Hann var heygður í hóli niður undir árbakka þar sem hann fylgist með siglingum skipa nú sem fyrr. Helstu fjöll eru Mánárhyrna í norðvestri og Dalaseti (540 m) að austan fyrir miðjum dal rís hinn mikilfenglegi Illviðrishnjúkur (895 m).

Fram yfir miðja öldina var búið á þremur bæjum á Dölum, Máná, Dalabæ og Engidal. Í aldarbyrjun bjuggu allt að 45 manns á Dalabæjunum.

Skömmu áður en komið er að Sauðanesvita, skerst dalverpi, Engidalur (3), inn milli brattra fjalla. Þar féll mikið snjóflóð á bæinn Engidal árið 1919 og fórst allt heimilisfólkið, 7 manns. Minnisvarði um þennan atburð, hár steindrangur, stendur á bæjarhlaðinu við veginn. Þar skammt frá er Ódáinsakur þar sem vaxa sérstök lífgrös.

 

Mynd augnabliksins

img_8200.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning