Sorphirða- og flokkun

Sorphirða dagatal 2024           

Gjaldskrá 2024   

Klippikort bæklingur (pdf)

Reglur um notkun sorpíláta úr plasti    

Samþykkt um meðhöldun úrgangs 

Nýtt samræmt flokkunarkerfi 

Með síðustu breytingum á lögum um meðhöndlun úrgangs var komið á samræmdu flokkunarkerfi yfir allt land. Þetta er mikilvægt fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi og stórt framfaraskref þar sem sýnt hefur verið fram á að sérsöfnun á hráefni leiði til meiri og betri flokkunar.
Nýja flokkunarkerfið byggir á sérsöfnun á eftirfarandi flokkum við íbúðarhús:

  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
  • Lífrænn eldhúsúrgangur
  • Almennt sorp

Þá er sveitarfélögum einnig skylt að nota samræmdar flokkunarmerkingar sem mun einfalda fólki mikið við flokkun. Merkingarnar eru samnorrænar og mikið af innfluttum vörum
frá Norðurlöndunum eru nú þegar merktar með þessum merkjum til að leiðbeina neytendum hvernig skuli flokka.

Frekari flokkunarleiðbeiningar má finna á heimasíðu Íslenska gámafélagsins.

4 tunnan Leiðbeiningar fyrir íbúa                      

Sorting instructions                              

Instrukcja sortowania

Opnunartími gámasvæða

Opnunartími gámasvæð er alla virka daga milli kl. 15:00 - 18:00 og á laugardögum milli kl. 11:00 - 13:00

Gámasvæðin eru staðsett í báðum byggðakjörnum:

Ólafsfjörður:
Námuvegur 3

Flöskumóttaka Skíðafélags Ólafsfjaðar Pálsbergsgötu 1 (aftan við Ísfell)
Opnunartími þriðjudaga frá kl. 17:30-18:30

Siglufjörður:
Við Ránargötu 

Flöskumótakan á Siglufirði á gámasvæði við Ránargötu

Opnunartími mánudaga frá 15:45-17:45

Lífrænn eldhúsúrgangur

Brúna tunnan er ætluð undir lífrænan eldhúsúrgang. Allir matarafgangar sem falla til á heimilinu og annar lífrænn úrgangur má fara í þennan flokk. Dæmi um lífrænan úrgang frá heimilum er t.d. afskurður af ávöxtum, kjöti eða fisk. Brauðmeti, kaffikorgur, tannstönglar, tepokar og þess háttar. Lífrænum úrgangi er safnað innandyra í maíspoka sem brotna niður við jarðgerðina. Mjög mikilvægt er að nota ekki poka úr plasti þar sem þeir brotna ekki niður og geta valdið tjóni í jarðgerðarstöðinni.

Flokkunartafla - lífrænn úrgangur

Pappír og pappi

Allir íbúar Fjallabyggðar eru með Græna tunnu við heimili sitt undir þann hluta heimilisúrgangs sem er endurvinnanlegur.  Mikilvægt er að gengið sé frá hráefninu samkvæmt meðfylgjandi leiðbeiningum, annars er hætt við að hráefnið verði óhæft til endurvinnslu og endi í urðun. 

Í tunnu fyrir pappír og pappa má setja pappír, bylgjupappa, fernur og sléttan pappa, dagblöð og tímarit. Til að hægt sé að endurvinna umbúðir/hráefni þarf það að vera hreint. Það er því mikilvægt að tæma og hreinsa matarleifar úr umbúðunum, annars eiga þær heima með almennu sorpi.

Flokkunartafla - pappi og pappír 

Almennt sorp

Almennt sorp er í raun blandaður úrgangur frá fyrirtækjum og heimilum. Þetta er að mestu úrgangur sem ekki getur flokkast í skilgreindan endurvinnsluferil og er þar af leiðandi óendurvinnanlegt. Dæmi um almennt sorp frá heimilum er t.d. bleiur, umbúðir úr blönduðu hráefni (t.d. plastumbúðir með álfilmu sem ekki er hægt að skilja frá), umbúðir sem ekki er hægt að hreinsa o.fl.

Plastumbúðir

Í tunnu fyrir plastumbúðir má eingöngu setja umbúðir úr plasti. Til að hægt sé að endurvinna plastumbúðir þurfa þær að vera hreinar. Það er því mikilvægt að tæma og hreinsa matar- og efnaleifar úr umbúðunum, annars eiga þær heima með almennu sorpi.

Flokkunartafla - plastumbúðir

Grenndarstöðvum komið upp á næstu vikum

Nýjar grenndarstöðvar verða settar upp í sveitarfélaginu, þar geta íbúar losað sig við málma, gler og textíl

Klippikort á gámasvæðum Fjallabyggðar.

Frá 1. janúar 2020 þurfa íbúar og rekstraraðilar í Fjallabyggð klippikort til að komast inn á gámasvæði sveitarfélagsins. Íbúar og rekstraraðilar geta sótt klippikortin á skrifstofu sveitarfélagsins Gránugötu 24 Siglufirði og Bókasafni Fjallabyggðar á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði. Íbúar og sumarhúsaeigendur fá afhent eitt kort á ári sér að kostnaðarlausu en rekstraraðilar þurfa að greiða 33.660 krónur fyrir kortið.

Ekkert þarf að greiða fyrir ógjaldskyldan úrgang en klippt verður fyrir allan gjaldskyldan úrgang.  Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast er hægt að kaupa aukakort á kr. 13.840. Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri Ráðhússins á Siglufirði á kr. 33.660 sem inniheldur 16 klipp fyrir 0,25 m³ eða samtals 4 m³.

Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.

Að öllu jöfnu ætti hvert kort að duga út árið. En ef kort klárast er hægt að kaupa aukakort á skrifstofum sveitarfélagsins. Upplýsingar um verð er að finna í gjaldskrá sorphirðu sem gefin er út á hverju ári.

Áríðandi er að skoða vel hvaða flokkar eru gjaldfrjálsir og hverjir gjaldskyldir. Sé sorpið flokkað til samræmis við það endist kortið lengur. Góð flokkun miðar að því að sem mest fari í endurvinnslu og eins lítið og mögulegt er til förgunar. Með því að flokka vel stuðlum við að umhverfisvernd og göngum í áttina að sjálfbærara samfélagi.

Klippikortið hjálpar

Tilgangur:
Gera flokkun markvissari og að kostnaður sé greiddur af þeim sem til úrgangsins stofnar.

Góð ráð:
Best er að flokka farminn áður en komið er á gámasvæðið. Ef úrgangur kemur blandaður saman (gjaldskylt og ógjaldskylt) þarf að greiða fyrir allan úrganginn.

Munum alltaf eftir kortinu:
Klippikortið veitir aðgang að svæðinu og þarf því alltaf að taka með, þó að eingöngu sé um endurvinnanlegan úrgang að ræða. 

Bæklingur til lestrar og útprentunar (pdf) 

Mikilvægi flokkunar

Með flokkun til endurvinnslu minnkar magn þess úrgangs sem endar í urðun. Þannig er umhverfið verndað samhliða því sem förgunargjöld lækka fyrir sveitarfélagið.  

Megnið af því efni sem kemur inn á gámasvæðið er endurnýtt með einum eða öðrum hætti. Þannig er úrgangi breytt í verðmæti og fyrir skil á slíkum úrgangi þarf ekki að greiða. Fyrir annað efni, sem þarfnast sérstakrar meðhöndlunar, þarf að greiða fyrir. 

Með því að flokka rétt er komið í veg fyrir sóun verðmæta og tryggt er að eingöngu sé greitt þegar við á.

Ef þú finnur ekki þær upplýsingar sem þú leitar að á þessum síðum biðjum við þig að láta okkur vita svo við getum bætt úr því. Þannig getum við byggt upp góðan upplýsingabanka sem auðveldar okkur að flokka rétt. Sendu okkur tölvupóst eða hringdu í síma 464 9100.