Síldarævintýri

Reglur um úthlutun leiguíbúða aldraðra í Skálarhlíð

Reglur um úthlutun leiguíbúða aldraðra í Skálarhlíð,

Hlíðarvegi 45 Siglufirði

1. gr.

Reglur þessar gilda um leiguíbúðir aldraðra í Skálarhlíð, Hlíðarvegi 45, Siglufirði og eru settar með tilvísun í reglur um úthlutun leiguíbúða í eigu Fjallabyggðar. Markmiðið með úthlutun íbúðanna er að gefa öldruðum einstaklingum í Fjallabyggð kost á að leigja aðgengilega íbúð, einkum þegar félagslegar- og heilsufarslegar aðstæður valda því að núverandi búseta hentar ekki og önnur úrræði í búsetumálum fást ekki.

2. gr.

  1. Umsækjandi skal vera 67 ára eða eldri og eiga lögheimili í Fjallabyggð.

  2. Umsækjandi skal uppfylla skilyrði til þess að geta búið í sjálfstæðri búsetu í Skálarhlíð.

3. gr.

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar úthlutar íbúðum til umsækjenda að fenginni umsögn fagaðila. Við úthlutun íbúða til aldraðra er fylgt eftirfarandi viðmiðun og skulu viðeigandi upplýsingar liggja fyrir við úthlutun.

  1. Uppfylling almennra skilyrða, s.s. aldur og lögheimili. Séu engir umsækjendur sem uppfylla þessi skilyrði eru aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar, þ.e. umsóknir yngra fólks og þeirra sem ekki eiga lögheimili í Fjallabyggð.

  2. Læknisfræðilegt mat og úttekt á félagslegum, þ.m.t. fjárhagslegum aðstæðum viðkomandi umsækjanda.

  3. Fjölskyldustærð, þ.e. hvort hjón eða einstaklingur sækja um og hvernig viðkomandi íbúð hentar umsækjanda.

  4. Aðrar þær aðstæður sem félagsmálanefnd telur skipta máli við úthlutun.

4. gr.

Sá sem fengið hefur úthlutað íbúð í Skálarhlíð þarf að vera fluttur í íbúðina innan 3ja mánaða frá úthlutunardegi. Ef frekari töf veður á innflutningi skal leita skýringa og ef viðhlítandi skýringar fást ekki hjá viðkomandi er félagsmálanefnd heimilt að ógilda úthlutunina og auglýsa viðkomandi íbúð aftur lausa til umsóknar.

Endurmeta skal búsetuskilyrði þeirra íbúa sem dvalið hafa samfellt 6 mánuði eða lengur á heilbrigðisstofnun. Ef niðurstaðan er sú að viðkomandi uppfylli ekki lengur skilyrði b liðar 2. greinar verður að leita annarra lausna í búsetumálum viðkomandi íbúa.

5. gr.

Húsaleiga skal greidd frá úthlutunardegi.

6. gr.

Að öðru leyti er við umsóknarferli og úthlutun íbúða aldraðra í Skálarhlíð vísað til reglna um úthlutun leiguíbúða Fjallabyggðar.

7. gr.

Reglur þessar fella úr gildi eldri úthlutunarreglur um íbúðir aldraðra í Skálarhlíð.

Samþykkt í félagsmálanefnd Fjallabyggðar 29. febrúar 2008
Staðfest af bæjarstjórn Fjallabyggðar 11. mars 2008
 

Mynd augnabliksins

sildaraevintyrid_a_siglufirdi_2008_v_mg_1977.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning