Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði

Reglur um leikskóla Fjallabyggðar

Hala niður PDF-Skrá

I. Umsókn
  1. Hægt er að sækja um leikskóladvöl þegar barn er orðið 6 mánaða.
  2. Umsókn er ekki háð því að umsækjandi hafi lögheimili í Fjallabyggð. Leikskóladvöl má þó ekki úthluta fyrr en lögheimili hefur verið flutt eða samið hefur verið við lögheimilissveitarfélag umsækjanda um greiðslur kostnaðar.
  3. Sótt skal um leikskóladvöl til viðkomandi leikskóla á þar til gerðum eyðublöðum eða á vefsvæði viðkomandi leikskóla. Eyðublöð skulu liggja frammi í leikskólum og á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar og vera gerð aðgengileg á vefsvæði sveitarfélagsins.
     
II. Meðhöndlun umsóknar
  4. Leikskólastjóri í viðkomandi leikskóla úthlutar leikskóladvöl í samræmi við reglugerð þessa. Úthlutun fer fram allan ársins hring eftir því sem pláss leyfir.
  5. Umsókn skal svarað skriflega eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi 14 dögum frá móttöku. Í svari skal koma fram dagsetning úthlutunar ef hún er þekkt. Ef ekki er laust leikskólapláss skal koma fram í svari hvenær ætla megi að úthlutun geti átt sér stað. Í svari skal gerður fyrirvari um forgangsreglur og þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað til að af úthlutun geti orðið.
  6. Þegar barni er úthlutað leikskóladvöl skal umsækjanda send tilkynning þar um. Tilkynningunni skulu fylgja áætlun um aðlögun barns, almennar leiðbeininga um leikskóladvöl, upplýsingar um viðkomandi leikskóla og eyðublað fyrir upplýsingar um barnið og heimildir til myndatöku, ferða o.fl .
     
III. Reglur um úthlutun leikskóladvalar
  7. Leikskólar Fjallabyggðar eru ætlaðir börnum á aldursbilinu tveggja ára til sex ára. Heimilt er að veita eins árs gömlum börnum leikskóladvöl ef það fellur að skipulagi skólastarfs viðkomandi leikskóla.
  8. Börn sem eiga lögheimili í Fjallabyggð á úthlutunardegi hafa forgang fram yfir börn sem eiga lögheimili í öðrum sveitarfélögum.
  9. Ef ekki koma til sérstakar ástæður til forgangs skv. 9. og 10. grein skal úthlutun leikskóladvalar ráðast af árgangi barns og dagsetningu umsóknar. Þó skal eldra barn í sama árgangi hafa forgang ef það er meira en 6 mánuðum eldra en barn á biðlista. Hafi umsókn verið send inn áður en lögheimili var flutt í sveitarfélagið skal miðað við móttöku umsóknar við úthlutun, enda hafi lögheimili verið flutt í sveitarfélagið fyrir þann dag þegar úthlutun fer fram.
  10. Úthlutun leikskóladvalar er háð því að hún falli að skipulagi leikskólastarfs og forráðamaður sé skuldlaus við leikskóla Fjallabyggðar.
  11. Eftirtaldir hópar hafa forgang fram yfir önnur börn frá 18 mánaða aldri:
    a. Fötluð börn og börn með skerta getu samkvæmt vottorði frá viðurkenndum greiningaraðila.
    b. Börn sem hafa sérstaka þörf fyrir leikskóladvöl samkvæmt mati félagsþjónustu Fjallabyggðar.
    Eftirtaldir hópar hafa forgang fram yfir önnur börn í sama árgangi:
    a. Börn sem búa í tvítyngdu málumhverfi.
    b. Börn einstæðra foreldra.
    c. Börn námsmanna í 75% námi eða meira sem varir í minnst tvær annir.
  12. Leikskólastjóri getur sótt um forgang til handa barni starfsmanns eða væntanlegs starfsmanns leikskóla til fræðslunefndar ef það er talið mikilvægt fyrir skólastarfið.
  13. Ef forráðamaður barns þiggur ekki boð um leikskóladvöl við úthlutun skal móttökudagsetning höfnunar teljast ný móttökudagsetning umsóknar, nema samkomulag náist um upphafsdag dvalar. Skal þá gjaldtaka fyrir leikskóladvöl hefjast eigi síðar en hálfum mánuði frá úthlutun.
  14. Óheimilt er að úthluta leikskóladvöl til skemri tíma en eins mánaðar. Einnig er óheimilt að úthluta leikskóladvöl vegna barns sem fyrir er skráð í annan leikskóla, nema fyrir liggi gögn um uppsögn dvalar þar.
     
IV. Breytingar á dvalartíma og uppsögn
  15. Óski foreldri/forráðamaður eftir aukningu á dvalartíma fyrir barn sem er á leikskólanum skal sækja um það á þar til gerðu eyðublaði. Umsókn um lengingu á dvalartíma skal meðhöndluð á sama hátt og aðrar umsóknir.
  16. Uppsögn leikskóladvalar skal vera skrifleg og undirrituð af forráðamanni. Fækkun tíma í leikskóladvöl telst uppsögn þeirra tíma sem um ræðir. Uppsagnarfrestur er 14 dagar og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.
  17. Sveitarfélaginu er heimilt að segja upp leikskóladvöl vegna vangoldinna gjalda. Uppsagnarfrestur af hálfu sveitarfélagsins skal vera 1 mánuður og miðast við 1. dag mánaðar. Uppsögn af hálfu sveitarfélagsins skal vera í samræmi við stjórnsýslulög, nr. 37 30. apríl 1993.
     
V. Um opnunartíma, dvalartíma og skyldur forráðamanna.
  18. Fræðslunefnd skal gera tillögur að opnunartímum hvers leikskóla að höfðu samráði við leikskólastjóra. Bæjarstórn Fjallabyggðar ákveður opnunartíma leikskóla að að fengnum tillögum frá fræðslunefnd. Opnunartímar skulu auglýstir á áberandi stað við inngang leikskóla og á heimasíðu leikskólanna og/eða sveitarfélagsins. Stytting opnunartíma eða hámarksdvalartíma telst til uppsagnar þess tíma sem stytt er um og skal því fylgja ákvæðum 14. greinar.
  19. Hámarksdvalartími barns er 8,5 klukkustundir á dag.
  20. Leikskóladvöl skal miðast við jafnan tímafjölda alla virka daga vikunnar.
  21. Ef sá tími sem úthlutað hefur verið til barns er illa nýttur skal leikskólastjóri óska eftir því við forráðamann að dvalartími barnsins sé endurskilgreindur þannig að hann taki mið af raunverulegri dvalarþörf. Ef árangurslaust hefur verið leitað eftir endurskilgreiningu er leikskólastjóra heimilt að segja upp þeim tímum sem að jafnaði eru ekki nýttir, að því gefnu að þeir geti nýst öðrum börnum.
  22. Komi forráðamaður of seint að sækja barn sitt miðað við skilgreindan dvalartíma skal hann greiða fyrir það samkvæmt gjaldskrá. Ef fyrirsjáanlegt er að tafir verði á að barn verði sótt skal það tilkynnt starfsmönnum eins fljótt og auðið er svo gera megi ráðstafanir varðandi mönnun.
     
VI. Reglur um gjaldtöku og innheimtu
  23. Bæjarstjórn ákveður gjaldskrá leikskóla og gerir breytingar á verðgrunni á grundvelli tillagna fræðslunefndar.
  24. Eftirfarandi afslættir eru veittir af leikskólagjöldum. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjaldi:
    a. Systkinaafsláttur er veittur vegna barna á forræði forráðamanns/manna sem hér segir, að því tilskildu að
þau eigi sameiginlegt lögheimili:
    30% afsláttur vegna 2. barns
    50 % afsláttur vegna 3. barns
    75 % afsláttur vegna 4. barns
    100% afsláttur vegna 5. barns og barna þar umfram.
    Njóti börn á forræði forráðamanns gjaldfrjálsrar þjónustu skulu þau ekki talin með við ákvörðun afslátta.
    b. Einstæðir foreldrar fá 30% afslátt af leikskólagjaldi fyrsta barns.
    c. Námsmenn í 75% námi eða meira sem varir í minnst eitt ár fá 30% afslátt af leikskólagjaldi fyrsta barns.
Námsmenn skulu staðfesta nám sitt með vottorði frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn.
  25. Leikskólagjöld og fæðisgjald skulu felld niður ef börn eru fjarverandi í 1 mánuð eða lengur vegna veikinda barns, að því tilskildu að veikindavottorð liggi fyrir. Að sama skapi er heimilt, að höfðu samráði við félagsþjónustu Fjallabyggðar, að fella niður leikskólagjöld ef félagslegar aðstæður valda langvinnum fjarvistum.
  26. Leikskólagjöld greiðast fyrirfram og er gjalddagi þeirra 1. dagur hvers mánaðar. Um innheimtu gjaldsins gilda að öðru leiti almennar reglur sveitarfélagsins um innheimtu.

Reglur þessar voru samþykktar á fundi fræðslunefndar Fjallabyggðar 19. júní 2007 og staðfestar á fundi bæjarstjórnar þann 10. júlí 2007.

Mynd augnabliksins

jonsmessuhatid_a_siglufirdi_v_mg_7066.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Snjómokstur
Veðrið á Ströndum og Norðurlandi-vestra
www.625.is
www.siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning