Í Fjallabyggð eru tvö knattspyrnufélög, Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) á Siglufirði og Íþróttafélagið Leiftur á Ólafsfirði. Liðin eru með sameiginlegt lið í 2. deild meistaraflokks karla. Allar nánari upplýsingar um félögin má finna á heimasíðum þeirra
Tvö stórmót í fótbolta fyrir börn eru haldin árlega, hvort í sínum bæ:
Nikulásarmótið er haldið í Ólafsfirði aðra helgi í júlí og nýtur vaxandi vinsælda. Þar mæta til leiks hressir krakkar úr 5., 6. og 7. flokki. Spilað er í flokkum A-, B- og C-liða.
Pæjumótið er meðal stærstu viðburða kvennaknattspyrnunnar á hverju ári. Mótið er haldið aðra helgi í ágúst ár hvert. Þar mæta til leiks stelpur í 4.-7. flokki alls staðar af á landinu.
Mikil stemming skapast í bæjunum tveimur á meðan að mótin standa yfir enda fer nærri að íbúatala hvors bæjar tvöfaldist á meðan keppendur og aðstandendur þeirra gista þá.







