Markmið með greiðslu húsaleigubóta er að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda íbúðarhúsnæðis. Sveitarfélagið sér um greiðslu húsaleigubóta og annast afgreiðslu umsókna. Sótt er um bætur fyrir hvert almanaksár og endurnýja þarf umsókn um hver áramót. Við útreikning húsaleigubóta er tekið mið af fjárhæð húsaleigu, heimilistekjum, eignum að frádregnum skuldum og framfærslu barna.
Hverjir eiga rétt á húsaleigubótum?
Þeir sem leigja húsnæði til íbúðar eiga rétt á húsaleigubótum að því tilskyldu að þeir eigi lögheimili í hinu leigða. Erlendir ríkisborgarar sem eiga lögheimili á Íslandi eiga sama rétt á húsaleigubótum og íslendingar. Undanþegnir ofangreindu eru fatlaðir einstaklingar á sambýlum og námsmenn á framhalds- og háskólastigi sem leigja herbergi á heimavist eða á stúdentagörðum.
Ekki eru greiddar húsaleigubætur vegna leigu á einstaklingsherbergjum ef eldhús eða snyrting er sameiginleg fleirum.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um húsaleigubætur á þar til gerðum eyðublöðum sem fáanleg eru á skrifstofum Fjallabyggðar.
Eftirtalin gögn þurfa að fylgja með umsókn um húsaleigubætur:
- Þinglýstur húsaleigusamningur til a.m.k. sex mánaða.
- Ljósrit af skattframtölum þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni, staðfest af skattstjóra. Hafi framtölunum verið skilað rafrænt er hægt að senda þau í tölvupósti á asta@fjallabyggd.is eða biddy@fjallabyggd.is.
- Ljósrit af launaseðlum (greiðsluseðlum) þeirra er í íbúðinni búa, fyrir síðustu 3 mánuði.
- Og/eða staðfesting á reiknuðu endurgjaldi fyrir sama tímabil.
- Vottorð frá Hagstofu Íslands eða sveitarfélagi um hverjir búa í íbúðinni.
- Staðfesting skóla um nám umsækjanda og/eða börn umsækjanda 20 ára og eldri.
Umsókn er ekki afgreidd fyrr en öll fylgigögn hafa borist.
Þarf að endurnýja umsókn?
Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Umsækjendur þurfa að endurnýja umsókn sína fyrir 16. janúar ár hvert til þess að greiðslur falli ekki niður.
Áhrif tekna og eigna á fjárhæð húsaleigubóta
Bætur skerðast óháð fjölskyldustærð í hverjum mánuði um 1% af árstekjum umfram 2 millj. kr. samkvæmt reglugerð um húsaleigubætur.
Gagnlegir vefir:
Umsóknareyðublað fyrir húsaleigubætur









