Umgengnisreglur fjölbýlishúsa Fjallabyggðar
1. Íbúar húseigna Fjallabyggðar og gestir þeirra skulu ganga um sameign, garða og bílastæði af snyrtimennsku og virðingu fyrir öðrum íbúum. Sérstaklega skal gæta að húsfriði milli klukkan 23:00 og 07:00. Íbúar skulu sjá til þess að gestir á þeirra vegum fari að reglum þessum í hvívetna.
2. Útihurðir skulu ávalt vera læstar til að hindra óæskilegan umgang um húseignir og millihurðir í sameign lokaðar af tilliti til brunavarna.
3. Gangar í sameign eru ætlaðir til umgangs að og frá íbúðum. Óheimilt er að nota þá sem leiksvæði eða sem geymslu fyrir muni eða rusl. Reiðhjól, kerrur og vagnar skulu geymdir í þar til gerðum geymslum eða í sérgeymslu viðkomandi íbúa.
4. Ruslageymslur skulu ekki notaðar til annars en söfnunar heimilissorps frá íbúðum í viðkomandi byggingu. Íbúar skulu skila pappakössum, ónýtum húsgögnum, dagblöðum o.þ.h. í gáma á gámasvæðum Fjallabyggðar.
5. Við inn og útflutning skal þess gætt að eðlilegur umgangur um gangana sé hindraður eins lítið og frekast er unnt.
6. Íbúum er heimilt að stilla upp skógrind á gangi við íbúðir sínar, að því tilskyldu að aðstæður leyfi og hún sé utan gangvegar. Óhreint eða illa lyktandi skótau skal þó ekki geymt á göngunum.
7. Íbúar skulu í sameiningu kappkosta að halda sameign snyrtilegri og skiptast á að gera hreint og halda ruslageymslu í horfi. Óhreinki íbúi eða gestir hans sameign umfram það sem eðlileg umgengni hefur í för með sér skal íbúinn sjá til þess að hreinsa óhreinindin eins fljótt og auðið er. Óheimilt er að henda sígarettustubbum og öðru rusli á lóðir og bílastæði.
8.
Íbúar
skulu sjá um þrif á sameign og umsjón með ruslageymslu til skiptis í viku í
senn samkvæmt vikuskipulagi hverrar húseignar.
Eftirtalin verk falla undir vikulegar skyldur við sameign:
- Skúringar í sameign (1 skipti)
- Þurrkun ryks úr gluggakistum, af póstkössum o.þ.h. (1 skipti)
- Daglegt eftirlit með ástandi í ruslageymslu og ruslarennu.
- Losun og hreinsun ruslageymslu og ruslarennu eftir þörfum. Fullir ruslapokar skulu settir út svo lykt berist ekki um húsið.
9. Hafi íbúi ekki tök á að sinna skyldum sínum þá viku sem honum er ætluð, skal hann gera ráðstafanir til að verkum sé sinnt, t.d. með því að skipta eða semja við aðra íbúa. Takist það ekki skal íbúi semja við umsjónarmann viðkomandi fasteignar um hreingerningu og umsjón ruslageymslu gegn greiðslu kostnaðar.
10. Brot á reglum þessum teljast til brota á húsleigusamningi. Endurtekin brot varða riftingu samningsins.
11. Sinni íbúar almennt ekki skyldum sínum er húsnæðisnefnd Fjallabyggðar heimilt að breyta fyrirkomulagi á umsjón með sameign og hækka greiðslur íbúa í hússjóð eða húsaleigu til að mæta kostnaðarauka sem af því hlýst.
Samþykkt af húsnæðisnefnd 20. ágúst 2007. Staðfest af bæjarstjórn 11. september 2007.







