Síldarævintýri

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð félagsþjónustu Fjallabyggðar fer eftir 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og reglum um fjárhagsaðstoð sem samþykktar voru 14. desember 2000. Upphæð fjárhagsaðstoðar tekur mið af tekjum umsækjanda eða hjóna/sambúðarfólks og ákveðinni grunnfjárhæð sem er frá 1. jan. 2007 fyrir einstakling kr. 93.705 og fyrir hjón kr. 149.928. Aðstoðin er í formi styrks eða láns.

Hverjir eiga rétt á fjárhagsaðstoð?
Í 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir m.a. að hverjum manni er skylt "að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára". Til að eiga rétt á fjárhagsaðstoð frá Fjallabyggð þarf umsækjandi að vera fjárráða og eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Sjálfstætt starfandi einstaklingar þurfa að hafa lagt inn vsk-númer sitt. Fjárhagsaðstoð er veitt í tengslum við önnur úrræði, t.d. ráðgjöf og leiðbeiningar.

Hvernig er sótt um?
Sótt er um fjárhagsaðstoð hjá félagsmálastjóra. Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókninni:

  1. Tekjuseðlar (laun/bætur) fyrir síðustu 2 mánuði.
  2. Nýjasta skattframtal og álagningarseðill.
  3. Skráning í Svæðisvinnumiðlun Suðurlands eða læknisvottorð um óvinnufærni.
  4. Önnur gögn eða gjöld sem við geta átt, s.s. yfirlit yfir greiðsluþjónustu.
  5. Dvalarleyfisskírteini frá Útlendingastofnun hafi umsækjandi erlent ríkisfang.

Umsókn þarf að vera undirrituð af umsækjanda.

Reglur um félagsþjónustu og fjárhagsaðstoð

Mynd augnabliksins

sildaraevintyrid_a_siglufirdi_2008_v_mg_2016.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning