Síldarævintýri

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur sem geta ekki án utanaðkomandi aðstoðar séð um heimilishald. Þjónustan getur verið veitt tímabundið eða til lengri tíma, allt eftir aðstæðum. Samkvæmt lögum um málefni aldraðra og lögum um félagslega þjónustu sveitarfélaga eiga þeir rétt á félagslegri heimaþjónustu sem búa í heimahúsum og geta ekki vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar sinnt heimilishaldi eða öðru hjálparlaust.
Sækja þarf skriflega um félagslega heimaþjónustu. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði og Siglufirði. Eftir að umsókn hefur borist hefur starfsmaður félagsþjónustunnar samband og ákveður heimsókn til að meta þörfina fyrir þjónustu, í samráði við umsækjanda. Þegar mat liggur fyrir er gengið frá þjónustusamningi þar sem nánar er tilekið hvaða verkefni starfsmaður skuli inna af hendi.

Mynd augnabliksins

sildaraevintyrid_a_siglufirdi_2008_h_mg_4525.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning