Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og
ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði og skal það gert með því að styrkja
uppeldishlutverk fjölskyldunnar. Er það
m.a. gert með ráðgjöf, fræðslu, forvörnum og eftirliti. Í barnaverndarstarfi eru hagsmunir barna
ávallt hafðir í fyrirrúmi. Samkvæmt
barnaverndarlögum nr. 80/2002 ber hverjum, sem hefur ástæðu til að ætla að barn
búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni
heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu, að tilkynna það barnaverndarnefnd.
Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 18 ára. Sá er tilkynnir getur
jafnan óskað nafnleyndar gagnvart öðrum en nefndinni.
Flýtilyklar
Á næstunni
29.07.201030.07.201031.07.201031.07.2010 1.08.2010 2.08.2010









