Fréttir

Úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar

Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar úthlutaði í gær þátttökuframlögum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010.

Þetta er önnur úthlutun af þremur á þessu ári. Á samningstímanum er varið 90 milljónum króna úr ríkissjóði í þeim tilgangi að efla nýsköpun atvinnulífsins á Eyjafjarðarsvæðinu og auka hagvöxt með samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Vaxtarsamningurinn samþykkti að þessu sinni þátttöku í 9 verkefnum og ver til þeirra samtals 7.450.000 kr.
Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SiglÓl ehf, MarinAgra ehf. og Rannsóknarstofa í hagnýtri örverufræði við HA sem fengu 1.000.000 kr. styrk til þróunar á vöru í matarpakka til nota við fyrstu neyðaraðstoð á átaka- og hamfarasvæðum. Hægt er að skoða úthlutunina nánar hér. 


Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_h_mg_1198.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning