Styrkir til atvinnumála kvenna
Annað - fimmtudagur 21.jan.10 - Inga Eiríksdóttir - Lestrar 239

Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.
Nýmæli í styrkveitingunum að þessu sinni er að hluti fjárins sem er til ráðstöfunar verður eyrnamerktur atvinnulausum konum sem hafa góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar









