Samgöngur og samfélag Fjallabyggðar fyrir opnun Héðinsfjarðarganga
Annað - laugardagur 6.feb.10 - Inga Eiríksdóttir - Lestrar 656

Ráðstefna í Ráðhúsinu Siglufirði laugardaginn 6. febrúar 2010 kl. 13:00 - 17:00
Með opnun Héðinsfjarðarganga haustið 2010 munu samgöngur á norðanverðum Tröllaskaga gjörbreytast og í kjölfarið má búast við margvíslegum breytingum á mannfjöldaþróun, efnahagslífi, opinberri þjónustu, menningu og félagslegum tengslum í Fjallabyggð.









