Síldarævintýri

Fréttir

Oddur í Nesi

Nýr bátur bættist í flota Fjallabyggðar í dag. Báturinn heitir Oddur á Nesi SI 76 og er siglfirskur í „húð og hár“ Oddur var smíðaður hjá Siglufjarðar-Seig ehf á Siglufirði.

Um vélaniðursetningu og alla stálvinnu um borð sá JE-vélaverkstæði ehf á Siglufirði og Raffó ehf á Siglufirði og Altor ehf á Akureyri sáu um rafmagn og siglingatæki.
Eigandi bátsins er Útgerðarfélagið Nesið ehf á Siglufirði.
Báturinn er 14.96 brt. og  er mesta lengd 12.36m og breidd 3.90m. Vélin er Volvo Penta D-12 650hö.
Báturinn er útbúinn til línuveiða og möguleiki er á því að setja beitningavél um borð.


Mynd augnabliksins

img_8226.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning