Nafn
Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar
Heimilisfang
Aðalgötu 14
Staður
Ólafsfirði
Póstnúmer
625
Sími 1
466-2651
Aðrar upplýsingar
Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar er fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er þar að finna eggjasafn, vísi að plöntusafni, ísbjörn sem skotinn var á Grímseyjarsundi, refi í greni, geithafur, krabba og fleira.
Náttúrugripasafni Ólafsfjarðar var komið upp árið 1993 og hefur vaxið stöðugt síðan. Ari Albertsson fuglaáhugamaður stoppaði upp megnið af fuglum safnsins og sá um uppsetningu þess. Þá gáfu afkomendur Jóns Sigurjónssonar og Birnu Finnsdóttur frá Ytri-Á á Kleifum safninu eggja og fuglasafn þeirra hjóna.
Safnið er opið alla daga á sumrin nema mánudaga frá kl. 14-17.
Hægt er að semja um opnun utan þessa tíma fyrir hópa.









